Almenn stefna um réttindagreiðslur til rétthafa, umsýslukostnað og frádrætti aðra en vegna umsýslukostnaðar Fjölís innheimtir endurgjald fyrir samningsbundna afritun/eintakagerð og dreifingu höfundaréttarvarins efnis sem unnt er að ljósrita, skanna eða með öðrum hætti gera hliðstæða eftirgerð skv. leyfissamningum. Innheimta fer fram án tafar þegar kröfur falla í gjalddaga og úthlutar Fjölís þeim til rétthafa í hlutfalli skv. samkomulagi aðildarfélaga...