Stjórnarráð
Samningur milli Fjölís og Stjórnarráðssins um ljósritun á höfundaréttarvörðu efni í stjórnsýslu ríkisins var undirritaður árið 1998. Samningurinn nær til allrar afritunar á höfundaréttarvörðu efni í opinberri stjórnsýslu ríkisins og nær til allra verka, íslenskra og erlendra sem undirorpin eru höfundarétti með þeim undantekningum ef höfundur hefur sérstaklega undanskilið verk sín.
Með opinberri stjórnsýslu er átt við rekstur ráðuneyta, sendiráða, embætta, dómstóla, heilbrigðisstofnana og heilsugæslu, stofnana/fyrirtækja og/eða annan rekstur sem heyrir til stjórnsýslu ríkisins. Rekstur menntastofnana er þar undanskilinn þar sem sérstakur samningur er í gildi milli menntamálaráðuneytisins og Fjölís um ljósritun og hliðstæða eftirgerð í skólum.
Samningur Fjölís heimilar, auk hefðbundinnar ljósritunar, skönnun, útprentun af netinu og annars konar rafrænna afritun og/eða dreifingu. Samningurinn tekur ekki til efnis sem aflað er með lögmætum samningum við efnisveitur og/eða höfunda sjálfa.
Ljósrita má stutta þætti úr hverju riti, 20% hið mesta og að hámarki 30 bls.