Friday, May 18, 2012
Click to navigate!
Gætið höfundaréttar ykkar...

með því að nota áminningu um höfundarétt þegar verk ykkar eru birt hvort sem það er á netinu, í rafrænum gagnabanka, á geisladiskum eða í prentuðu formi

Click to navigate!
Verk á netinu

Verk, sem birt eru á netinu, er einungis heimilt að lesa af skjá samkvæmt höfundalögum

Click to navigate!
Til bókmennta og lista teljast...

... samið mál í ræðu og riti, leiksviðsverk, tónsmíðar, myndlist, byggingarlist, kvikmyndir, ljósmyndalist, nytjalist og aðrar samsvarandi listgreinar, á hvern hátt og í hverju formi sem verkið birtist

Click to navigate!
Verk telst gefið út...

... þegar eintök af því eru með réttri heimild og í álitsverðum fjölda boðin opinberlega til sölu, láns eða leigu eða þeim er dreift til almennings með öðrum hætti. Nú er vernd verks háð því, að það hafi fyrst verið gefið út hér á landi, og telst því skilyrði þá fullnægt, ef það er gefið hér út innan 30 daga frá því, að það kom fyrst út erlendis

Click to navigate!
Við stöndum vörð um þinn hag og þín réttindi




Hvað er Fjölís?
Minimize

Fjölís er hagsmunafélag samtaka sem koma fram fyrir hönd rétthafa að verkum sem njóta höfundaréttar og nýtt eru með ljósritun eða annarri hliðstæðri eftirgerð rita.


Ábending um höfundarrétt
Minimize

Gætið höfundaréttar ykkar

með því að nota áminningu um höfundarétt þegar verk ykkar eru birt hvort sem það er á netinu, í rafrænum gagnabanka, á geisladiskum eða í prentuðu formi.

Höfundaréttur er virkur án sérstakrar skráningar eða merkingar. Hins vegar er mikilvægt að þeir sem eiga höfundarétt geri notendum grein fyrir skilyrðum sem gilda um not verka með því að nota áminningu um höfundarétt. Þetta á ekki síst við um verk sem birt eru á netinu því mörgum er ókunnugt um hvaða reglur gilda þar.

Verk, sem birt eru á netinu, er einungis heimilt að lesa af skjá samkvæmt höfundalögum. Útprentun, geymsla, áframsending eða önnur notkun efnisins er því óheimil nema til komi ótvírætt samþykki rétthafa eða sérstök lagaheimild. Þeim fjölgar stöðugt sem prenta út af netinu greinar úr dagblöðum eða fræðitímaritum (án þess að gera sér grein fyrir því að slíkt sé ólöglegt) í stað þess að ljósrita af pappírsútgáfum sömu rita. Til þess að Fjölís geti með samningum sínum tryggt að rétthafar fái endurgjald fyrir slíka fjölföldun verka, sem eru aðgengileg öllum á netinu, er æskilegt að rétthafarnir merki slík verk með tillögu Fjölís að áminningu um höfundarétt.

Stjórn Fjölís mælir með að eftirfarandi áminningar um höfundarétt séu notaðar þegar verk eru birt:

..................................................................................................................................................................

Á netinu:

©NN 2002

Allt efni á þessari vefsíðu er verndað af ákvæðum höfundalaga. Það er sett hér til þess að unnt sé að lesa það af skjá . Sérhver eintakagerð eða dreifing efnisins þess utan er óheimil nema til komi samkomulag við NN, sérstök lagaheimild eða samningur við Fjölís, samtök rétthafa höfundaréttar.

Notkun, sem brýtur í bága við lög eða samninga, getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.

...................................................................................................................................................................

Í rafrænum gagnabönkum:

©NN 2002

Allt efni í þessum gagnabanka er verndað af ákvæðum höfundalaga. Gera má það aðgengilegt í rafrænu formi til XX . Sérhver eintakagerð eða drefing efnisins þess utan er óheimil nema til komi samkomulag við NN, sérstök lagaheimild eða samningur við Fjölís, samtök rétthafa höfundaréttar.

Notkun, sem brýtur í bága við lög eða samninga, getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.

..................................................................................................................................................................

Á geisladiskum:

©NN 2002

Allt efni á þessum geisladiski er verndað af ákvæðum höfundalaga. Gera má það aðgengilegt á rafrænan hátt til XX . Sérhver eintakagerð eða dreifing efnisins er óheimil þess utan nema til komi samkomulag við NN, sérstök lagaheimild eða samningur við Fjölís, samtök rétthafa höfundaréttar.

Notkun sem brýtur í bága við lög eða samninga getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.

..................................................................................................................................................................

Vegna verka í prentuðu formi:

©NN 2002

Allt efni í þessu riti er verndað af ákvæðum höfundalaga. Ef ekki er til að dreifa samþykki NN er sérhver eintakagerð og dreifing efnisins óheimil nema til komi lagaheimild eða heimild í samningi við Fjölís, samtök rétthafa höfundaréttar.

Notkun, sem brýtur í bága við lög eða samninga, getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.

..................................................................................................................................................................

Auðvitað má bæta við í áminningunni öðrum notkunarmöguleikum sem rétthafi vill heimila, sbr. umfjöllun í kaflanum "Aðlögun orðalags að einstökum tilvikum"þar sem sjá má nánari útskýringar á hvernig má nota slíkar áminningar í mismunandi samhengi.

 

Höfundalögin: Engin skylda til að merkja

Engin krafa er í höfundalögum um að efni skuli merkt eða skráð til að öðlast vernd. Höfundur verks nýtur höfundaréttarverndar frá því andartaki sem verkið hefur verið skapað. Þetta er í samræmi við ákvæði Bernarsáttmálans til verndar bókmenntum og listum, sem er alþjóðasáttmáli sem Ísland er aðili að, en samkvæmt honum er aðildarríkjum óheimilt að gera kröfu um merkingar eða skráningar til að öðlast höfundarétt.

Það er alvanalegt bæði hérlendis og erlendis að merkja verk sem falla undir höfundalög með merkinu © (rétthafi) (ártal). Það er í samræmi við alþjóðasáttmála um höfundarétt.

Á forlagssíðu bókar, þar sem upplýsingar er að finna um útgáfuna og forlagið sem gefur hana út, er algengt að finna svohljóðandi áminningu um höfundarétt:

Bók þessa má ekki afrita með neinum hætti, svo sem ljósmyndun, prentun hljóðritun, eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfundar og útgefanda.

Í ljósi þess að fjölmargar stofnanir hafa nú samning við Fjölís sem heimilar ljósritun að ákveðnu marki ráðleggur Fjölís að slík áminning um höfundarétt sé svohljóðandi:

Bók þessa má ekki afrita með neinum hætti, svo sem ljósmyndun, prentun, hljóðritun, eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfundar og útgefanda eða með samningi við Fjölís, samtök rétthafa höfundaréttar eða slíkt sé heimilt samkvæmt lögum.

Áminning um höfundarétt

Ofangreindar áminningar eru byggðar á norskri fyrirmynd og voru þær upphaflega unnar af Kopinor, systursamtökum Fjölís í Noregi (www.kopinor.no).

Notkun áminningar um höfundarétt hefur venjulega engin sérstök réttaráhrif. Öll verk sem falla undir höfundalögin eru vernduð samkvæmt þeim hvort sem þau eru merkt og skráð eða ekki. Hins vegar hafa slíkar áminningar upplýsandi áhrif. Einnig er ljóst að notendur hafa þörf fyrir leiðbeiningar um hvaða reglur gilda um efni sem sett er á netið, í gagnabanka og á geisladiska.

Réttaráhrif áminninga um höfundarétt á netinu og í gagnabönkum

Áminning um höfundarétt getur haft sjálfstæða þýðingu um efni sem sett er á netið eða í gagnabanka. Verk, sem eingöngu er birt á netinu eða í gagnabanka, telst samkvæmt hefðbundinni túlkun á 2. gr. höfundalaga ekki útgefið nema fyrir liggi ótvírætt samþykki rétthafa til notenda um að prenta megi verkið. Ef efni er merkt með höfundaréttaráminningu samkvæmt ofangreindum fyrirmyndum telst það útgefið.

Samningar Fjölís

Fjölís gerir samninga um fjölföldun útgefinna verka með ljósritun eða annarri hliðstæðri eftirgerð á grundvelli umboðs aðildarfélaga sinna og ákvæði höfundalaganna um samningskvöð. Tekur umboð Fjölís til allra útgefinna verka, innlendra sem erlendra, án tillits til þess hvort verkin eru merkt með áminningu um höfundarétt eða ekki.

Það er hins vegar grundvallarskilyrði að um útgefið efni sé að ræða í skilningi höfundalaga. Ef verk hefur verið gefið út á prenti uppfyllir það vanalega það skilyrði og ef sama verk er að auki aðgengilegt á netinu fellur það einnig undir samninga Fjölís. Það væri ósanngjarnt gagnvart notanda að greina á milli eftir því hvort ljósritað er eftir prentuðu eintaki eða prentað frá gagnagrunni í tölvu.

Samningar Fjölís geta líka, ef rétthafar óska þess, tekið til efnis sem eingöngu er birt á netinu eða í gagnabönkum. Forsenda þess er þó að rétthafarnir gefi Fjölís umboð til þess með því að merkja efnið með ofangreindum tillögum um höfundarétt. Með því að setja slíka áminningu telst efnið "útgefið" í skilningi höfundalaga þar sem áminningin heimilar eintakagerð, þrátt fyrir að sú eintakagerð sé skilyrt og gegn greiðslu á grundvelli samninga við Fjölís. Þannig er hægt að tryggja endurgjald til rétthafa og notkun áður óbirts efnis á netinu og í gagnabönkum kemst í skipulegan farveg.

Til hvers tekur heimild notanda ?

Mikið af því efni, sem birt er á netinu, er ætlað til frjálsrar dreifingar og fjölföldunar (auglýsingar, almennar upplýsingar o.s.frv.). Samkvæmt höfundalögum hefur notandinn ekki rétt til þess að fjölfalda eða dreifa efni sem birt er á netinu, utan til einkanota, nema til komi ótvírætt samþykki rétthafa eða sérstök lagaheimild. Af þeim sökum er það skylda rétthafa sem ætlar efni sitt til frjálsrar notkunar, framar því sem höfundalög heimila, að kynna notendum það á augljósan hátt.

Það er ekki tilgangur Fjölís að innheimta gjald vegna fjölföldunar verka sem ætlað er til frjálsrar notkunar eða þar sem notkun hefur þegar verið greidd (t.d. með áskrift eða beinum samningum við einstaka rétthafa). Það er hins vegar nauðsynlegt fyrir alla rétthafa að gera sér grein fyrir afleiðingum þess að heimila almenna frjálsa notkun efnis á netinu framar því sem höfundalög heimila. Allir notendur, sem geta valið á milli þess að gera eitthvað ókeypis eða greiða fyrir sama hlut, velja að sjálfsögðu hagstæðari kostinn. Endurgjald sem innheimtist í gegnum Fjölís myndi þannig smám saman minnka ef prentað útgefið efni væri jafnframt ókeypis til dreifingar á netinu.

Jafnframt vill Fjölís minna á þá staðreynd að allir sem eru ábyrgir fyrir vefsíðum þurfa að tryggja að þeir hafi heimild allra rétthafa þess efnis sem birt er á síðunni, þ.e. ekki bara heimild þeirra til að birta efnið á síðunni, heldur líka til þeirrar notkunar á efninu sem vefsíðan heimilar.

Aðlögun orðalags að einstökum tilvikum

Orðalag einstakra áminninga um höfundarétt verður að sjálfsögðu að endurspegla aðstæður hverju sinni. Einnig verða slíkar áminningar að vera staðsettar þar sem notendur sjá þær greinilega. Þar sem í texta hér að ofan eru settir stafirnir NN er að sjálfsögðu átt við að nafn rétthafa sé sett. Þar sem stafirnir XX eru settir í texta er gert ráð fyrir nafni leyfishafa eða áskrifanda að gagnabanka.

Neðanmálsgreinin í tillögu Fjölís er til þess að minna á að gera þarf grein fyrir þeirri notkun sem heimil er umfram það sem lög eða samningar heimila. Ef það er tilfellið skal bæta við á viðeigandi stað í áminningunni um höfundarétt hvað er heimilt (t.d. útprentun, dreifing, breytingar á efninu o.s.frv.). Ef eingöngu er ætlunin að heimila eintakagerð í samræmi við samninga Fjölís skal nota það orðalag sem lagt er til hér að ofan.

Hver og einn getur bætt við áminninguna ef ástæða er til og/eða notað almennara orðalag um hvað notanda er heimilt eða óheimilt. Einnig má gjarnan ítreka skyldu notenda til að tilgreina hver sé höfundur verks á fjölfölduðum eintökum.

Seinni málsgrein tillögunnar um afleiðingar brota á höfundarétti þarf ekki nauðsynlega að vera í áminningunni. Ákvæði VII. kafla um bótaábyrgð og refsingar gilda hvort sem slík áminning er notuð eða ekki.

Fjölís hvetur alla rétthafa til að setja áminningu um höfundarétt á verk sín til þess að gæta hagsmuna sinna, gera sýnilegra hvaða reglur gilda og skapa með því aukið öryggi og varkárni í meðferð hugverka.

Ef þörf er frekari upplýsinga eða leiðbeininga um þetta efni vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Fjölís.


Efni heimasíðu Fjölís er verndað af höfundarétti.
Heimilt er án endurgjalds að vista efni heimasíðunnar á rafrænan hátt, prenta það, fjölfalda og dreifa. Heimild til slíkrar eintakagerðar er þó bundin því skilyrði að þess sé getið hvaðan efnið sé sótt (gjarnan með vísun í veffang Fjölís
www.fjolis.is) og höfundar getið (ef það kemur fram á heimasíðunni).
Sérstaka heimild þarf til breytingar eða þýðingar á efni sem tekið er af vefsíðunni.
Fjölís vill gjarnan fá tilkynningu ef heimasíðan er sett á tengil.

Privacy Statement  |  Terms Of Use
Copyright 2009 by DotNetNuke Corporation
);